 |
OOPS. Your Flash player is missing or outdated. Click here to update your player so you can see this content.
|
|
|
|
|
Domus Vox Laugavegur 116 105 Reykjavík
sími 511-3737 www.domusvox.is
This e-mail address is being protected from spam bots, you need JavaScript enabled to view it
Skrifstofutími: Mánudag – fimmtudag kl. 14:00-18:00
|
|
|
|
|
Haustönn 2010 Skráning hér á síðunni og á Rafræn Reykjavík Óperugleði með Vox feminae og Sigrúnu Hjálmtýsdóttur í Íslensku óperunni!Miðvikudaginn 12. maí kl. 20 og fimmtudaginn 13. maí kl. 16 stendur kvennakórinn Vox feminae fyrir sannkallaðri söngveislu í Íslensku óperunni. Tónleikarnir bera yfirskriftina „Brindisi!“ sem á íslensku útleggst „Þína skál!“ og þar verða flutt verk úr mörgum þekktustu verkum óperusögunnar. Þar koma fram Vox feminae, Sigrún Hjálmtýsdóttir, félagar úr karlakórnum Fóstbræðrum, félagar úr Stúlknakór Reykjavíkur ásamt fleiri listamönnum." Nú vetur burtu víkur " Söngskólinn Domus vox heldur upp á 10 ára afmæli með stórtónleikum í Langholtskirkju á sumardaginn fyrsta 22. apríl kl. 20:00, undir stjórn Margrétar J. Pálmadóttur. Fram koma kvennakórinn Cantabile,Stúlknakór Reykjavíkur, kennarar skólans og hljómsveit undir stjórn Stefáns S. Stefánssonar. Stúlknakór Reykjavíkur og Kramhúsið halda stórsýningu í Íslensku óperunni 21. apríl undir stjórn Margrétar J. Pálmadóttur og Hafdísar Árnadóttur í tengslum við Barnamenningarhátíð Reykjavíkurborgar, en þær eiga 25 ára samstarfsafmæli um þessar mundir. um 100 börn frá sjö ára aldri koma fram og skapa einlæga samfellda sýningu. Yfirskrift sýningarinnar er " Tíminn líður trúðu mér" , en þar minna börnin foreldra á, hversu dýrmæt samvera fjölskyldunnar er! Haustönn 2009 Stúlknakór Reykjavíkur ásamt Vox feminae og Gospelröddum Domus vox taka þátt í fernum Frostrósartónleikum í Laugardalshöll dagana 12. og 13. desember
Jólatónleikar söngdeildar Domus vox verða haldnir í Háteigskirkju laugardaginn 5. desember kl. 16:00. Aðgangur er ókeypis Tíundu aðventutónleikar Domus vox
Hátíð er ný er yfirskrift glæsilegra aðventutónleika kóra Margrétar J. Pálmadóttur í Hallgrímskirkju miðvikudaginn 9. desember kl. 20 og föstudaginn 11. desember kl. 20.
Á tónleikunum koma fram 180 söngkonur á öllum aldri úr Stúlknakór Reykjavíkur og kvennakórunum Cantabile og Vox feminae og flytja margar af okkar fallegustu aðventu- og jólaperlum.
Stjórnandi tónleikanna er Margrét J. Pálmadóttir og einsöngvari með kórunum er Hanna Björk Guðjónsdóttir sópran. Eydís Franzdóttir leikur á óbó, Sigurður Halldórsson á selló og Antonia Hevesi á orgel.
Caritas tónleikar í Kristskirkju - Vox feminae ásamt Stúlknakór Reykjavíkur tekur þátt í Caritas tónleikum, styrktartónleikum kaþólsku kirkjunnar sunnudaginn 15. nóvember ásamt öðrum listamönnum þar á meðal Diddú og Kristján Jóhannsson. Trúar tónar - Kvennakórinn Cantabile og Stúlknakór Reykjavíkur halda tónleika í Háteigskirkju sunnudaginn 8. nóvember kl. 17.00. Kyrie - Tónleikar Vox Feminae í Kristskirkju fimmtudaginn 29. október kl. 20:00. Sunnudagir 1. nóvember syngur kórinn í messu í Reykholti og flytur hluta af efnisskrá Kyrie tónleikanna eftir messu.
|
| |
|
|
|
|