OOPS. Your Flash player is missing or outdated.Click here to update your player so you can see this content.
Forsíða
Um Domus Vox
Stúlknakór Reykjavíkur
Cantabile Kvennakór
Vox feminae
Starfsmenn
Skráning
 

Domus Vox
Laugavegur 116
105 Reykjavík

sími 511-3737
www.domusvox.is
This e-mail address is being protected from spam bots, you need JavaScript enabled to view it

Skrifstofutími:
Mánudag – fimmtudag kl. 14:00-18:00

 
Kvennakórinn Vox feminae

Kvennakórinn Vox feminae
Kvennakórinn Vox feminae var stofnaður árið 1993 af Margréti J. Pálmadóttur og hefur starfað undir stjórn hennar æ síðan. Kórinn hefur haldið sjálfstæða tónleika einu sinni til sex sinnum á ári og farið  í tónleikaferðir bæði innanlands og utan. Kórinn hefur sungið með Sinfoníuhljómsveit Íslands og Alba-hópnum og tók einnig þátt í  Kristnitökuhátíð á Þingvöllum. Í kórnum starfa að jafnaði 40 konur.  Í nóvember 2000 vann kórinn til silfurverðlauna í VIII. alþjóðlegu kórakeppni í flutningi trúarlegrar tónlistar, keppni sem kennd er við tónskáldið Palestrina og haldin er í Vatikaninu í Róm.                             
 
Trúarleg tónlist ásamt íslenskum þjóðlögum og sönglögum hefur einkennt lagaprógram kórsins.  Kórinn gaf út geisladiskinn “Mamma geymir gullin þín” árið 2000 með íslenskum sönglögum og þjóðlögum og árið 2003 gaf kórinn út geisladiskinn “Himnadrottning” (Regina Coeli) með trúarlegri tónlist m.a. eftir Brahms, Hjálmar Ragnarsson, Þorkel Sigurbjörnsson, Palestrina, Orlanda di Lasso, Hreiðar Inga Þorsteinsson, Atla Heimi Sveinsson, Kodaly. Þá eru hafnar upptökur á geisladiski með trúarlegri tónlist sem kemur væntanlega út þessu ári.