OOPS. Your Flash player is missing or outdated.Click here to update your player so you can see this content.
Forsíđa
Um Domus Vox
Stúlknakór Reykjavíkur
Cantabile Kvennakór
Vox feminae
Starfsmenn
Skráning
 

Domus Vox
Laugavegur 116
105 Reykjavík

sími 511-3737
www.domusvox.is
This e-mail address is being protected from spam bots, you need JavaScript enabled to view it

Skrifstofutími:
Mánudag – fimmtudag kl. 14:00-18:00

 
Cantabile Kvennakór

Gospelsystur
Cantabile er kvennakór fyrir konur frá 18 ára aldri.  Kórinn var stofnaður haustið 1997, sem Gospelsystur Reykjavíkur af Margréti J. Pálmadóttur.  Efnisval kórsins er íslensk kvennakóratónlist,  þjóðlög og kirkjutónlist.  Á þeim árum sem liðin eru frá stofnun kórsins hefur hann komið fram við mörg tækifæri og sungið víða bæði innanlands og utan.  Kórinn hefur haldið marga sjálfstæða tónleika og fjölmargir þjóðkunnir listamenn hafa komið fram með kórnum.  Kórinn hefur m.a farið í tónleikaferðir til Akureyrar, Sauðárkróks, Egilsstaða, Ólafsvíkur, Þýskalands, Ítalíu og Ameríku.  Í ágúst 2001 fór í tónleikaferð til Ameríku nánar til tekið til New Orleans og New York.  Í new Orleans sóttu þær námskeið í gospelsöng og hugmyndafræðinni í kringum þá tegund tónlistar.  Árið 2003 fór kórinn í pílagrímsferð Rómar á Ítalíu þar sem hann söng við hámessu í Péturskirkjunni. Félagar úr kórnum hafa nokkrum sinnum sótt æfingabúðir til Ítalíu, nú síðast í júní 2009.