 |
OOPS. Your Flash player is missing or outdated. Click here to update your player so you can see this content.
|
|
|
|
|
Domus Vox Laugavegur 116 105 Reykjavík
sími 511-3737 www.domusvox.is
This e-mail address is being protected from spam bots, you need JavaScript enabled to view it
Skrifstofutími: Mánudag – fimmtudag kl. 14:00-18:00
|
|
|
|
|
 Stúlknakór Reykjavíkur var stofnaður af Margréti J. Pálmadóttur kórstjóra, haustið 1994. Frá árinu 2000 hefur kórinn starfað í sönghúsinu Domus Vox við Skúlagötu. Stúlknakórinn hefur ávallt verið fjölmennur og um þessar mundir eru félagar um 100 á aldrinum fimm ára til nítján ára og er starfið aldursskipt.
Starf Stúlknakórsins byggir meðal annars á því að þroska söngnæmi nemenda með því að flytja kórtónlist af ýmsum toga. Fjöldi stúlknanna stundar einnig einsöngsnám við söngskólann Domus Vox, þannig er söngur orðinn stór þáttur í lífi þeirra.
Kórinn hefur haldið fjölda tónleika, bæði sjálfstæða og í samtarfi við aðra kóra. Hann hefur meðal annars sungið með Sinfoníuhljómsveit Íslands, hann hefur í nokkur ár sungið aðventutónleika með kvennakórum Margrétar í Hallgrímskirkju, þar sem 200 konur og stúlkur sameinast í hátíðlegum söng. Samstarf kóranna er mjög mikilvægt og náði hámarki þegar á annað hundrað konur og stúlkur á öllum aldri klæddust íslenskum þjóðbúningum og sungu fyrir forseta Íslands og sænsku konungsfjölskylduna í Perlunni í september 2004 Haustið 2004 tóku 33 stúlkur úr kórnum þátt í söngleiknum “Litla stúlkan með eldspýrnar”, sem sýndur var í Íslensku óperunni. Síðastliðin sumur hafa einn eða fleiri hópar úr stúlknakór farið í söngbúðir til Toscana á Ítalíu og sungið í kirkjum og torgum í ýmsum borgum héraðsins og utan þess. Í sumar sem leið hélt Kórinn til Rómar og söng meðal annars í Péturskirkjunni og hélt stórkostlega tónleika í San Ignazio kirkjunni í Róm.
Deildir: Stúlknakór Reykjavíkur I 3,2,1 bekkur Stúlknakór Reykjavíkur II 7,6,5,4 bekkur Stúlknakór Reykjavíkur III (Vox junior) 8 bekkur og eldri
|
|
|
|
|
|